Leikkonan Courteney Cox, sem þekkt er fyrir leik sinn í þáttunum um Vini, á þessa dagana í viðræðum við framleiðendur Aðþrengdra eiginkvenna um að hún taki að sér gestahlutverk í þáttunum.
Til stendur að Cox, sem er 41 árs, leiki sjúkling sem sloppið hefur af stofnun fyrir geðsjúka í þáttunum, að því er Ananova skýrir frá og hefur eftir New York Post.
Komi Cox fram í þáttunum verður það fyrsta verkefnið sem hún tekst á hendur eftir fæðingu dótturinnar Coco Riley í fyrra.