„Brjálaðar“ eiginkonur ritskoðaðar fyrir sýningar í kínversku sjónvarpi

Kínverskur háskólastúdent horfir á eiginkonurnar. Honum fannst þær „leiðinlegar“.
Kínverskur háskólastúdent horfir á eiginkonurnar. Honum fannst þær „leiðinlegar“. AP

Það var hreinsað til á Bláregnsslóð áður en aðþrengdu eiginkonurnar sem þar búa voru sýndar kínverskum sjónvarpsáhorfendum í fyrsta sinn opinberlega í kvöld. Kynlífs- og ofbeldisatriði hafa flest hver verið klippt út úr þáttunum, sem kínverska ríkissjónvarpsstöðin CCTV8 hefur hafið sýningar á. Og þættirnir eru talsettir á mandarín.

Öll fyrsta þáttaröðin verður sýnd á sjö dögum, þrír þættir hvert kvöld. Ekki hefur fengist uppgefið hvernig nákvæmlega hreinsað hefur verið til í þáttunum, en sá fyrsti var um þrem mínútum styttri en hann er í upphaflegri útgáfu. Myndir af glæpavettvangi voru klipptar burtu, og kynlífssena á matarborði var fjarlægð í heild sinni.

Qin Mingxin, aðstoðarframkvæmdastjóri erlendrar dagskrárdeildar CCTV8, sagði að ekki hefði þurft að gera margar „breytingar“ á þáttunum, en allnokkrar breytingar urðu í þýðingunni „aðallega til að hreinsa málfarið aðeins“. Og í titlinum í þýðingunni á mandarín, útbreiddasta tungumálið í Kína, eru eiginkonurnar ekki „aðþrengdar“ heldur „brjálaðar“.

Í ágúst tilkynnti kínverska menningarmálaráðuneytið um umfangsmiklar aðgerðir til að herða tök kommúnistastjórnarinnar á dægurmenningu, þ.á m. aukna ritskoðun á innfluttu sjónvarpsefni. Sjóræningjaútgáfur af upprunalegu útgáfunni af þáttunum um eiginkonurnar fást í öllum helstu borgum Kína á DVD, og er hægt að fá alla fyrstu þáttaröðina fyrir sem svarar rúman þúsundkall.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant