Teri Hatcher tjáir sig um kaup og kjör á Bláregnsslóð

Hatcher er hún tók við verðlaunum í Þýskalandi í nóvember.
Hatcher er hún tók við verðlaunum í Þýskalandi í nóvember. Reuters

Teri Hatcher hefur tjáð sig um fullyrðingar þess efnis að hún sé hæst launaða aðþrengda eiginkonan. Í viðtali við tímaritið Marie Claire segist hún hafa orðið reið þegar sálfræðingur sagði bandarískum götublöðum að Teri væri í megrun og ætlaði að verða grennst kvennanna á Bláregnsslóð til að réttlæta það að hún fengi hærri laun en hinar.

Frá þessu greinir fréttavefurinn Ananova.com.

Teri, sem er 41 árs, svaraði fullum hálsi: „Það ætti að taka af honum leyfið fyrir tala um einhvern sem ekki er skjólstæðingur hans. Ég veit ekki einu sinni hvort ég er með hæsta kaupið ... Ég fæ nákvæmlega jafn mikið og þegar ég skrifaði undir fyrsta samninginn og ég hef ekki hugmynd um hvað hinar stelpurnar eru með.“

Hún segist annað hvort hafa fengið hlutverk í þáttunum vegna þess að hún hafi átt það skilið, eða vegna þess að „einhverjum sýndist að ég væri aumasta manneskjan í heiminum og ef ekki yrði gert eitthvað stórkostlegt fyrir mig myndi ég drepa mig í þunglyndiskasti“.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant