Leikkonan Teri Hatcher, sem kunn er fyrir að leika í sjónvarpsþáttunum Aðþrengdar eiginkonur, vakti mikla athygli þegar hún mætti á verðlaunahátíð Grammy-verðlaunanna í Hollywood í gærkvöldi.
Hatcher var klædd bláum og gegnsæjum kjól, sem hannaður var af John Paul Gaultier.
„Ég vildi ekki að neinn þyrfti að velkjast í vafa um hvort ég væri í nærhaldi eða ekki," sagði Hatcher, sem veitti m.a. verðlaun á hátíðinni. „Við bjuggum samt til nokkrar rykkingar til að tryggja að þið sæjuð ekkert sem þið eigið ekki að sjá," bætti hún við.
Þegar Hatcher kom til verðlaunahátíðar Golden Globe verðlaunanna í janúar kom Isaac Mizrahi, fréttamaður E! fréttastöðvarinnar, henni á óvart þegar hann togaði í hálsmálið á toppi, sem hún var í, og sagðist vera að leita að skrifaðri ræðu.
Í þetta skipti kom Hatcher öllum á óvart, þar á meðal sjálfri sér.
„Vá, þetta er gegnsætt," sagði hún eftir að hafa skoðað mynd af sér á sjónvarpsskjá.