Litlu munaði að Teri Hatcher missti sjón á öðru auganu

Teri Hatcher.
Teri Hatcher. Reuters

Litlu mátti muna að Teri Hatcher missti sjónina á öðru auganu er hún var við tökur á Aðþrengdum eiginkonum þegar ljósapera sprakk og brot úr henni lenti í auga Hatchers, sem var flutt á sjúkrahús í skyndi.

Nú skartar hún lepp fyrir hægra auga á meðan sárin gróa, en þrátt fyrir það hefur hún verið dugleg við að horfa á björtu hliðina og segir góðu fréttirnar vera þær, að hornhimnan í auganu sé fljótari að gróa en nokkur annar vefur í líkamanum.

Hatcher er 42 ára. Hún fer með hlutverk Susan Mayers í þáttunum. Brotið úr ljósaperunni rispaði hornhimnuna, og Hatcher segir að þótt hún finni svolítið til hafi hún reynt að sjá húmorinn í því hvað þetta sé alltsaman skringilegt. „Það var farið með mig til yndislegs læknis og núna er ég með glæsilegan lepp. Þetta var engum að kenna.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant