Mikil eftirspurn eftir miðum á Bubba tónleika

Beðið eftir miðum á tónleika Bubba Mortens.
Beðið eftir miðum á tónleika Bubba Mortens. mbl.is

Mikil örtröð var fyrir utan verslun Og Vodafone við Síðumúla í Reykjavík þegar forsala aðgöngumiða á afmælistónleika Bubba Morthens hófst klukkan 10 í morgun. Talið er að tæplega 100 manns hafi beðið fyrir utan verslunina þegar verslunin opnaði. Miðað við þann fjölda sem bíður eftir miðum má gera ráð fyrir að miðar í stúku klárist í dag. Rúmlega 5.000 miðar eru í boði í heild sinni. Almenn miðasala hefst á mánudaginn í verslunum Og Vodafone og á vefsíðu fyrirtækisins.

Á afmælistónleikunum sem eru í tilefni af 50 ára afmæli Bubba, sem eru 6. júní, mun tónlistarmaðurinn líta yfir farinn veg að flytja tónlist frá öllum sínum ferli undanfarin 26 ár. Á þriðja tug tónlistarmanna koma fram með Bubba á tónleikunum. Meðal hljómsveita sem koma fram á tónleikunum með Bubba eru: Utangarðsmenn, Egó, GCD, Das Kapital og fleiri.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson