Fyrsta þing striplinga fer nú fram í Ríó de Janeiro í Brasilíu um helgina. Þátttakendur vonast til þess að með þinginu verði hægt að leiðrétta ýmsar ranghugmyndir fólks um þá sem kjósa að koma saman naktir. Slíkt stripl er viðurkennt í Brasilíu, enda býður veðrið upp á það.