Söngvarinn Rod Stewart er mjög ánægður með brjóstastækkunina sem Kimberly dóttir hans fór nýlega í. Hann segir að Kimberly sé núna með mjög „fallegt par“. Söngvarinn, sem á sjö börn með fjórum konum, segir að brjóstastækkunin hafi aukið sjálfstraust dóttur sinnar, sem er 27 ára gömul fyrirsæta.
„Dóttir mín var dálítið flatbrjósta þannig að hún fór í brjóstastækkun. Hún er með mjög fallegt par núna. Það er ekkert að því held ég, fyrst það eykur sjálfstraust hennar,“ sagði hinn stolti faðir í samtali við dagblaðið Daily Star.