Breska hljómsveitin The Stranglers mun halda tónleika 6. mars nk. á Nasa við Austurvöll. Sveitin hefur tvívegis haldið hljómleika hér á landi og í bæði skipti fengið mjög góðar viðtökur. Hljómsveitin hélt tónleika í Laugardalshöll árið 1978 og tróð síðan upp í Smáranum 4. desember fyrir tveimur árum.
Mannabreytingar hafa orðið síðan Stranglers spilaði hér á landi síðast. Söngvarinn Paul Roberts hætti í sveitinni fyrr á þessu ári og skipta bassaleikarinn J.J. Burnel og gítarleikarinn Baz Warne því með sér söngnum.
The Stranglers, sem stofnuð var árið 1974, gaf út sína sextándu hljóðversplötu sl. haust, Suite XVI.