Tölvupóstur berst nú hratt á milli manna víða um heim þar sem fólk er beðið um að klæðast rauðum bolum á morgun til þess að sýna stuðning við frelsisbaráttu á Myanmar. Í frétt BBC í dag kemur fram að níu hafi látist í mótmælum á Myanmar er undanfarna tíu daga hefur verið mótmælt á götum úti.
Mótmælin hófust með því að nokkur hundruð búddamunkar fóru í mótmælagöngu til að mótmæla gríðarlegri hækkun á eldsneyti í landinu. En þeim fjölgaði sífellt sem tóku þátt og hafa um og yfir eitt hundrað þúsund manns tekið þátt þegar mest hefur verið.