Óvenjulegt aukastarf kennara

Ítölsk kona hefur verið rekin úr starfi kennara vegna þess að í ljós kom að hún gegnir óvenjulegu aukastarfi. Konan leikur nefnilega í klámmyndum, sem seldar eru gegnum netið.

Menntamálayfirvöld í norðurhluta Ítalíu segja, að aukastarf Önnu Ciriani, sem kallar sig Madameweb, samræmist ekki kennarastarfinu. Ciriani segist hins vegar ávallt hafa hagað sér óaðfinnanlega í kennslustofunum.

„Ég er venjuleg kona sem á fjölskyldu og starfa sem kennari þótt ég stundi kynlíf og eigi mér dökkar hliðar," hefur fréttastofan AGI eftir henni.

Ciriani, sem ítalskir fjölmiðlar hafa nefnd klámkennarann, var vikið í starfi menntaskólakennara í bænum Pordenone fyrir fimm árum eftir að námsmenn veggfóðruðu salerni skólans með nektarmyndum af henni, sem sóttar höfðu verið á netið. Hún hefur síðan kennt í kvöldskóla fyrir erlenda námsmenn í nálægum bæ.

En Madameweb vakti athygli á ný eftir að myndband, sem tekið var af henni á erótískri hátíð í Berlín í október var mikið skoðað á netinu. Í kjölfarið ákváðu menntamálayfirvöld að svipta Ciriani kennararéttindum.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson