Brain Police og Björgvin meðal tilnefndra til tónlistarverðlauna

Liðsmenn Brain Police
Liðsmenn Brain Police Morgunblaðið/Halldór Kolbeins

Það er fjölbreyttur hópur sem tilnefndur er til íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir bestu poppplötuna á árinu. Í hópnum eru bæði reynslumiklir tónlistarmenn á borð við Björgvin Halldórsson og nýgræðingarnir í Brain Police. Aðrir sem tilnefndur eru flokknum eru Mínus, Sálin hans Jóns míns, 200.000 naglbítar, Maus og Eivør Pálsdóttir. Mínus fær samtals 5 tilnefningar til íslensku tónlistarverðlaunanna.

Tilnefningarnar fyrir árið 2003 eru sem hér segir:

Ýmis tónlist

Hljómplata ársins

  • Brot - Músík úr leikhúsinu Egill Ólafsson
  • Óður til Ellýjar - Guðrún Gunnarsdóttir
  • Lína Langsokkur - úr leikriti
  • Rímur - Steindór Andersen
  • Tangó - Le Grand Tangó og Egill Ólafsson
Sígild og nútíma tónlist

Hljómplata ársins

  • Brandenborgarkonsertar Jóhanns Sebastíans Bachs. Kammersveit Reykjavíkur undir stjórn Jaap Schröder. Útgefandi: Smekkleysa.
  • Passía eftir Hafliða Hallgrímsson. Mary Nessinger, Garðar Thor Cortes, Mótettukór og Kammersveit Hallgrímskirkju. Hörður Áskelsson stjórnar flutningi. Útgefandi: Ondine.
  • Sjöstrengjaljóð. Fimm kammerverk Jóns Ásgeirssonar í flutningi Kammersveitar Reykjavíkur. Útgefandi: Smekkleysa.
  • Virgo gloriosa. Sex trúarleg söngverk eftir Báru Grímsdóttur í flutningi sönghópsins Hljómeykis. Bernharður Wilkinsson stjórnar flutningi. Útgefandi: Smekkleysa.
  • Þýðan eg fögnuð finn. Útsetningar íslenskra tónskálda á.tónlist úr handritum. Sönghópurinn Gríma. Útgefandi: Smekkleysa.
Tónverk ársins
  • Guðbrandsmessa eftir Hildigunni Rúnarsdóttur. Flytjendur eru Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Marta Hrafnsdóttir, Björn I. Jónsson, Eiríkur Hreinn Helgason, Kór og Kammersveit Langholtskirkju undir stjórn Jóns Stefánssonar.
  • Sinfónía eftir Hróðmar Inga Sigurbjörnsson. Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn Bernharðs Wilkinssonar.
  • Sinfóníetta eftir Jónas Tómasson. Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn Bernharðs Wilkinssonar.
  • Konsert fyrir klarínettu og blásarasveit eftir Tryggva M. Baldvinsson. Sveinhildur Torfadóttir og Blásarasveit Reykjavíkur undir stjórn Kjartans Óskarssonar.
  • Píanótríó eftir Þórð Magnússon. Trio Nordica, skipað Auði Hafsteinsdóttur, Bryndísi Höllu Gylfadóttur og Monu Sandström.
Flytjandi ársins
  • CAPUT fyrir flutning sinn á tveimur tímamótaverkum 20. aldarinnar eftir þá Arnold Schönberg og Pierre Boulez í Salnum árið 2003 þar sem Guðmundur Óli Gunnarsson stjórnaði flutningi.
  • Sinfóníuhljómsveit Íslands & konsertmeistararnir Guðný Guðmundsdóttir og Sigrún Eðvaldsdóttir.
  • Elín Ósk Óskarsdóttir sópransöngkona fyrir túlkun sína á hlutverki lafði Mackbeth í óperu Verdis, Mackbeth, í uppfærslu Íslensku óperunnar árið 2003.
  • Kammersveit Reykjavíkur fyrir tónleikaferðalag um Belgíu og Rússland ásamt Vladimir Ashkenazy sumarið 2003.
  • Rumon Gamba, fyrir starf sitt sem aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Jazztónlist

Plata ársins

  • Björn Thoroddsen: Jazz airs
  • B3: Fals
  • Hilmar Jensson: Ditty bley
  • Ómar Guðjónsson: Varma land
  • Tómas R. Einarsson: Havana
Flytjandi ársins
  • Björn Thoroddsen
  • B 3
  • Hilmar Jensson
  • Jóel Pálsson & Sigurður Flosason
  • Stórsveit Reykjavíkur
Lag ársins
  • Agnar Már Agnarsson: „Leeloo“
  • Ásgeir Ásgeirsson: „Og hvað svo“
  • Hilmar Jensson: „Grinning“
  • Ómar Guðjónsson: „Skúri“
  • Tómas R. Einarsson: „Bros“
Popptónlist

Hljómplata ársins

  • Mínus - Halldór Laxness
  • Sálin hans Jóns míns - Vatnið
  • 200.000 naglbítar - Hjartagull
  • Maus - Musick
  • Björgvin Halldórsson - DUET
  • Eivør Pálsdóttir - Krákan
  • Brain Police - Brain Police
Lag ársins
  • Ást - ljóð: Sigurður Nordal / lag: Magnús Þór Sigmundsson af plötunni Íslensk Ástarljóð flytjandi Ragnheiður Gröndal
  • Mess it up – lag og texti: Sölvi Blöndal og Ómar Torfason flytjandi: Quarashi
  • Láttu mig vera – lag Vilhelm Anton Jónsson og Kári Jónsson, texti Vilhelm Anton Jónsson flytjandur 200.000 naglbítar af plötunni Hjartagull
  • Japanise Policemen – lag og texti Kimono af plötunni mineur aggressif. Flytjandi Kimano
  • The Long Face – lag og texti Mínus. Af plötunni Laxnes frá Mínus
Flytjandi ársins
  • Mínus
  • Eivør Pálsdóttir
  • Sálin hans Jóns míns
  • Birgitta
  • Brain Police
  • Stuðmenn
Söngkona ársins
  • Ragnheiður Gröndal fyrir Vísnaplötuna og Íslensk ástarljóð
  • Eivør Pálsdóttir
  • Ragnhildur Gísladóttir
  • Birgitta Haudal
  • Margrét Eir
Söngvari ársins
  • Stefán Hilmarsson
  • Krummi
  • Jón Jósep Snæbjörnsson
  • Björgvin Halldórsson
  • Jens Ólafsson
Nýliði ársins
  • Ragnheiður Gröndal
  • Mugison
  • Brain Police
  • Skytturnar
  • Kimono
Myndband ársins
  • Sigur Rós – ( ) Floria Sigismundi
  • Maus – My favorite excuse
  • Bang Gang – Stop in the name of lover – Ragnar Bragason
  • Land & synir – Von mín er sú – Friðrik og Guðjón
  • Mínus – Flopphouse nightmares – Börkur ljósmyndari
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant