[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Staður og stund

Fyrirhugað er að frumsýna Batman 5 myndina í júní 2005 og er leikstjóri Christopher Nolan.

Fyrirhugað er að frumsýna Batman 5 myndina í júní 2005 og er leikstjóri Christopher Nolan.

Veröld/Fólk | mbl.is | 5.1.2004 | 14:22

Batman-5 tekin að hluta í Freysnesi í Öræfum

Atriði í næstu Batman-mynd, númer 5, verða tekin nærri Freysnesi í Öræfum og þegar hafa menn frá Saga Film hafið undirbúning á tökustaðnum eystra. Umfang þessa verkefnis mun vera í líkingu við James Bond-verkefnið, en eins og kunnugt er voru áhættuatriði í Die Another Day tekin á Jökulsárlóni.

Haft er eftir Finni Jóhannessyni hjá Saga Film, á fréttavefnum Horni.is að nokkrar vikur séu í að tökur hefjist og reiknað sé með að þær muni standa yfir í eina til tvær vikur.

Fyrirhugað er að frumsýna Batman 5 myndina í júní 2005 og er leikstjóri Christopher Nolan, sem m.a. gerði myndina Memento. Christian Bale mun fara með hlutverk Bruce Wayne/Batmans í myndinni. Hann hefur m.a. leikið í myndunum Captain Corelli's Mandolin, Shaft og American Psycho. Alfred Pennyworth, þjón Batmans, leikur breski leikarinn Michael Caine. Kvenhetjuna leikur Katie Holmes, sem leikur m.a. í sjónvarpsþáttunum Vík milli vina. Þá herma sögusagnir að Viggo Mortensen muni leika illmennið en Mortensen er í hlutverki Aragorns í myndunum um Hringadróttinssögu.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Veröld/Fólk / 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir