[ Fara í meginmál | Forsíđa | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS ţjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stćrđ Stćkka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Stađur og stund

Lay Low tók lagið á verðlaunahátíðinni í kvöld.

Lay Low tók lagiđ á verđlaunahátíđinni í kvöld. mbl.is/Sverrir

Veröld/Fólk | mbl.is | 31.1.2007 | 22:03

Lay Low sigurvegari íslensku tónlistarverđlaunanna

Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir, öđru nafni Lay Low, var óumdeildur sigurvegari íslensku tónlistarverđlaunanna sem veitt voru í kvöld. Lovísa var valin söngkona ársins í flokki fjölbreyttrar tónlistar, flytjandi ársins í símakosningu međan á útsendingu frá hátíđinni stóđ í Sjónvarpinu og umslag plötu hennar, Please Don't Hate Me, var valiđ plötuumslag ársins. Ólafur Gaukur hlaut heiđursverđlaun tónlistarverđlaunanna.

Vinsćlasta lag ársins 2006 var Barfly međ Jeff Who? en kosiđ var á milli 30 vinsćlustu laganna á tónlist.is. Ghostigital fékk útrásarverđlaun Reykjavíkur Loftbrúar. Einar Örn Benediktsson sagđi, ţegar hann ţakkađi fyrir verđlaunin, ađ hann hefđi í mörg ár unniđ viđ ţađ ađ flytja sjálfan sig út og alltaf komiđ til baka.

Ţá fékk FL Group hvatningarverđlaun Samtóns en ţau verđlaun eru veitt ţeim sem efla og styđja íslenska tónlist.

Listi yfir verđlaunahafana er eftirfarandi:

Baggalútur fékk verðlaun fyrir plötu sína Apana í Eden.

Baggalútur fékk verđlaun fyrir plötu sína Apana í Eden. mbl.is/Sverrir

FJÖLBREYTT TÓNLIST

Lag og texti ársins
Ghostigital: Not Clean

Flytjandi ársins
Björgvin Halldórsson

Popp - Hljómplata ársins
Hafdís Huld: Dirty Paper Cup

Dćgurtónlist - Hljómplata ársins
Baggalútur: Aparnir í Eden

Rokk & jađar - Hljómplata ársins
Pétur Ben: Wine for my Weakness

Ýmis tónlist - Hljómplata ársins
Skúli Sverrisson: Sería

Söngvari ársins
Bubbi Morthens

Söngkona ársins
Lay Low

JAZZ

Lag ársins
Einar Valur Scheving: Líf

Flytjandi ársins
Útlendingahersveitin

Hljómplata ársins
Jóel Pálsson: Varp

ÖNNUR VERĐLAUN

Myndband ársins
Trabant: The One
höfundar myndbands: Reynir Lyngdal og Trabant

Plötuumslag ársins
Lay Low: Please Don´t Hate Me

Bjartasta vonin
Elfa Rún Kristinsdóttir, fiđluleikari

SÍGILD OG SAMTÍMATÓNLIST

Tónverk ársins
Áskell Másson: Fiđlukonsert

Flytjandi ársins
Víkingur Heiđar Ólafsson píanóleikari

Hljómplata ársins
Ţorlákstíđir
Flytjendur: Voces Thules.

Fara til baka Til baka

 

Veröld/Fólk / 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir