
Mona Lisa AP
Upplýst hver Mona Lisa var
Háskólinn í Heidelberg hefur sent frá sér tilkynningu um ađ starfsmenn á vegum skólans hafi komist ađ ţví hvađa kona eigi bros Monu Lisu sem ítalski málarinn Leonardo da Vinci gerđi ódauđlegt. Konan á myndinni heitir Lisa del Giocondo, eiginkona kaupsýslumannsins Francesco del Giocondo.
Samkvćmt upplýsingum frá ţýska háskólanum hefur rannsóknarmađur á vegum skólans fundiđ gögn sem stađfesta ađ Lisa del Giocondo er konan á myndinni. Kemur ţetta fram í texta sem ritađur er á spássíu bókar sem var í eigu vinar da Vinci.
Stađfestir ţetta grun sem lengi hefur veriđ uppi um hver konan er en ţađ var strax áriđ 1550 sem rithöfundurinn Giorgio Vasari hélt ţessu fram. Vasari tímasetti einnig gerđ málverksins en samkvćmt honum var ţađ málađ á tímabilinu 1503-1506, samkvćmt tilkynningu frá háskólanum í Heidelberg. Málverkiđ af Monu Lisu eđa La Gioconda á ítölsku er til sýnis í Louvre-safninu í París.
Hćgt er ađ lesa meira um tengsl Giocondo og Monu Lisu á Wikipedia
Til baka







Senda inn efni