[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Staður og stund

Stephen Fry.

Stephen Fry. Reuters

Veröld/Fólk | Morgunblaðið | 20.1.2008 | 05:30

Stephen Fry handleggsbrotnaði í Brasilíu

Breski leikarinn Stephen Fry handleggsbrotnaði þegar hann var við tökur í Brasilíu fyrir skömmu. Fry, sem er orðinn fimmtugur, var við tökur á sjónvarpsþættinum Last Chance To See sem fjallar um dýr í útrýmingarhættu. Farið var með leikarann á sjúkrahús í Brasilíu en svo var flogið með hann til Bandaríkjanna til frekari meðferðar.

Talið er að Fry hafi runnið til og dottið með fyrrgreindum afleiðingum. Búist er við því að leikarinn nái sér að fullu og verði kominn aftur til starfa fyrir lok þessa árs.

Fry er hvað þekktastur fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsþáttunum um félagana Jeeves og Wooster.

Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.

Fara til baka Til baka

 

Veröld/Fólk / 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir