[ Fara í meginmál | Forsíđa | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS ţjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stćrđ Stćkka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Stađur og stund

Veröld/Fólk | AP | 13.3.2008 | 10:58

Spitzer greiddi vćndiskonu 300.000

VILLA: Myndskeiđsskrá fannst ekki (nr. 15884).

Eliot Spitzer, fyrrverandi ríkisstjóri í New York, greiddi 22 ára vćndiskonu, Ashley Alexandra Dupré, sem svarar 300.000 krónum fyrir eina nótt á  hóteli í Washington.

The New York Times hefur eftir Dupré: „Ég vil ekki ađ fólk líti á mig sem eitthvert skrímsli. Ţetta hefur veriđ mjög erfiđur tími. Ţetta er flókiđ mál.“

Lögreglan hefur greint frá ţví ađ Durpé hafi hitt Spitzer á hóteli í Washington 13. febrúar, og hafi hann greitt henni 4.300 dollara fyrir.

Hún sagđi viđ New York Times ađ hún hafi átt í erfiđleikum međ ađ standa í skilum međ leiguna, en hún býr í íbúđ á Manhattan í nýlegu húsi ţar sem mánađarleiga fyrir litla stúdíóíbúđ er um 3.500 dollarar á mánuđi, eđa sem svarar 240.000 krónum. 

Dupré kom fyrir rétt á mánudaginn var sem vitni í máli gegn fjórum mönnum sem sakađir eru um ađ reka vćndisţjónustu sem kallast Emperors Club VIP.

Á MySpace síđu Dupré kemur fram ađ hún hafi flust til New York frá New Jersey til ađ gerast söngkona. Hún heitir réttu nafni Ashley Youmans.

Dupré hefur ekki veriđ ákćrđ en hún hefur veriđ kvödd fyrir rannsóknarkviđdóm til ađ bera vitni.

Heimasíđa Ashley Alexöndru Dupré

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Veröld/Fólk / 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir