New Kids on the Block snúa aftur
Bloggað um fréttina
-
JúlíanaÉg vona
-
Sía litlaJess... Mikið var... hver kemur með..
-
Hvíti RiddarinnÞetta vissi ég....
-
Ómar Ingi FriðleifssonHérna er smá taste af nýja laginu þeirra
-
Jónas Björgvin AntonssonÞetta er það sem mér finnst...
-
MarilynÞessi með skrítnu hökuna
Endurkomur hjá fornfrægum hljómsveitum vekja ávallt einhver viðbrögð. Sumar hljómsveitir hafa snúið aftur eftir að hafa hætt og náð að halda velli. Norska tríóið í A-ha snéri aftur árið 2000 og hefur gert ágæta hluti síðan og ekki er langt síðan strákarnir í Take That tóku höndum saman á ný, svo einhver dæmi séu tekin. Nú er bara spurning hvort endurkoma New Kids on the Block heppnist vel.
Hljómsveitin, sem var gríðarlega vinsæl í fáein ár á níunda áratugnum, mun leika fyrir áhorfendum í fyrsta sinn í 14 ár þann 17. maí í New Jersey. Um er að ræða stóran tónlistarviðburð þar sem einnig koma fram Miley Cyrus, the Jonas Brothers, OneRepublic, Simple Plan og síðasti sigurvegari American Idol Jordin Sparks.
Til baka







Senda inn efni
