
Madonna og Guy Ritchie Reuters
Kynlöngunin hvarf í megrunarkúrnum
Bloggað um fréttina
-
Gunnar Th. Gunnarsson....eða svo sagði hann
-
Þorsteinn GunnarssonMeð hann reiddan um öxl...
-
Júlíana800 hitaeiningar á dag
-
Jónas Björgvin AntonssonSviðsett heimsókn þeirra hjóna til Íslands...
-
Jóhannes RagnarssonVandræðagemlingur missir náttúru
Madonna hefur ljóstrað því upp að eiginmaður hennar, Guy Ritchie, hafi misst kynlífsáhuga og getu þegar hann var í megrun. Segir Madonna að Ritchie hafi farið í megrunarkúr þar sem aðalfæðan var hitaeiningasnauðar kexkökur. Segir hún að það hafi verið hræðilegur tími í hjónabandinu þar sem hann hafi ekki haft neinn áhuga á kynlífi.
Hún gladdi hins vegar aðdáendur sína með því að bæta því við að hann sé hættur á kúrnum, „Guði sé lof," segir Madonna.
Madonna segir að þrátt fyrir þessa leiðinlegu hliðarverkun hafi megrunarkúrinn, sem inniheldur 800 hitaeiningar á dag, skilað árangri. Hún telur hins vegar að Ritchie hafi alls ekki þurft á því að halda að grenna sig. Hann hafi einungis fylgt í fótspor félaga sinna.
Til baka







Senda inn efni