[ Fara í meginmál | Forsíđa | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS ţjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stćrđ Stćkka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Stađur og stund

 Rúnar Freyr Rúnarsson.

Rúnar Freyr Rúnarsson.

Veröld/Fólk | 24 stundir | 16.4.2008 | 05:30

Rúnar Freyr: Slćr í gegn međ norskum slagara

Eftir Trausta Salvar Kristjánsson traustis@24stundir.is

Akureyringurinn Rúnar Freyr Rúnarsson gaf út sína fyrstu plötu nýveriđ, Rúnar Eff, og hefur tökulagiđ Take on me, sem A-ha gerđi frćgt á sínum tíma, hljómađ í viđtćkjum víđa, ţar á međal í Noregi.

 

Morten safnar stefgjöldum

„Morten Harkert og hinir strákarnir í bandinu eru auđvitađ skráđir fyrir laginu, ţannig ađ ţeir brosa eflaust breitt til mín. Morten hefur ţó ekki haft samband! Hver veit nema hann taki ábreiđu eftir mig, svona til ađ launa mér greiđann,“ segir Rúnar kankvís.

Platan var ţó ekki alveg plönuđ. „Upphaflega ćtlađi ég nú bara ađ taka upp eitt lag og leggja nokkuđ í ţađ. Síđan hvatti félagi minn mig áfram og sagđi ađ ég ćtti nóg efni fyrir heila plötu, ţannig ađ ég tók hann á orđinu. Ţađ vildi líka ţannig til ađ ég átti eitthvađ af peningum aflögu, en ţađ er nú liđin tíđ,“ segir Rúnar sem fluttist til Danmerkur međ konu sinni og barni fyrir fjórum árum.

„Ég fór til ađ lćra margmiđlunarhönnun og spila íshokkí, en nú hef ég sagt skiliđ viđ hokkíiđ í bili. Ég hef einnig veriđ í söngnámi, auk ţess sem ég kenni söng sjálfur.

 

Persónuleg plata

Ţetta er allt frumsamiđ utan A-ha-lagsins. Ţetta er svona ađ mestu leyti einhvers konar popp/rokk, en ţarna er til dćmis ađ finna flamenco-takta og grínlög inn á milli. Textarnir fjalla um sjálfan mig og mína nánustu, fjölskyldu, vini og vandamenn. Flest lögin eru á ensku, en ţađ fljóta einhver íslensk međ,“ segir Rúnar sem vonast til ađ platan komist í sölu í Noregi.

„Ég hef fengiđ fína spilun í Noregi og er nú ađ semja um ađ selja hana ţarna. Ţá er í burđarliđnum tónleikaferđalag um Ísland, Noreg og Ţýskaland, en ţađ kemur allt betur í ljós síđar.“

Heimasíđa Rúnars er:

www.runar.is.

 

Í hnotskurn
Ţrítugur Akureyringur og tífaldur íslandsmeistari. Hefur starfađ sem dyravörđur, plötusnúđur og trúbador. Heldur sérstaklega mikiđ upp á Elvis Presley.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Veröld/Fólk / 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir