Ísland endaði í 14. sæti
Bloggað um fréttina
-
Haraldur HaraldssonÍsland endaði í 14 sæti/Lagið flott og vel flutt!!
-
Jóhann Frímann TraustasonRússland var með
-
Guðrún S HilmisdóttirRússnesku birnirnir unnu
-
Guðrún Emilía GuðnadóttirÞið eruð frábær.
-
BLOGGERgengur betur næst.
-
Sólveig Klara KáradóttirMerkilegt fyrirbæri
-
Guðsteinn Haukur BarkarsonHættum þessu kjaftæði!
-
Kjartan SæmundssonÚkraína var langbest í Eurovision í kvöld
-
Eyþór ArnaldsEurovision - ESB
-
Hulda ProppéEurovision og Íslendingar...
-
Ridar T. Falls6 orða saga #334
-
Sveinn Ingi LýðssonFrábær árangur Íslendinga!
-
Doddi - Þorsteinn G. JónssonFlott frammistaða, flottur árangur!!! Ég spáði
-
Þórður Helgi ÞórðarsonHver segir svo að grín atriði virki ekki?
-
Jenný Anna BaldursdóttirÍ hvaða sæti - einhver?
-
Bjarni HarðarsonAuðvitað slítum við stjórnmálasambandi við Rússa..
-
Jóhannes RagnarssonLöngum hafa danir verið oss góðir
-
Solla Guðjónsþetta er bara bull
-
Björn Jóhann BjörnssonHver var á ljósunum?!
-
Kiddi BlöÉg veit 100% hvað þarf til að vinna
-
Jón Ingi CæsarssonSkiptir ekki máli.
-
Rúnar Haukur IngimarssonBrosa bara í gegnum tárin
-
Bergur ThorbergVestur-Evrópuþjóðir: Hættum þessari vitleysu
-
Baldur KristjánssonRússar hafa forskot.....
-
Júlíus SigurþórssonFæreyjar og Grænland með næst.
-
Jóna Kolbrún GarðarsdóttirVið þurfum að flytja Ísland til austur evrópu
-
Ásgeir Eiríksson14. sæti - meira og minna allt fyrirséð
-
Markús frá DjúpalækSkelfing
-
Bjarni Thor KristinssonSlepptu Íslandi í grafíkinni!
-
Magnús JónssonHvaða bull er þetta alltaf um sæti??
-
Anna Ólafsdóttir (anno)Þurfum að fara að muna ...
-
Njörður HelgasonÚt úr þessu bulli!
Íslenska Eurovisionlagið This is your Life endaði í 14. sæti í Belgrad í kvöld. Ísland fékk sex stig frá Bretum í atkvæðagreiðslu söngvakeppninnar nú í kvöld og tvö stig frá Lettum. Þá fékk það átta stig frá Norðmönnum og Portúgölum, fjögur frá Spánverjum og sex frá Möltu. Finnar gáfu íslenska laginu sjö stig, Svíar gáfu því átta stig. Danir, sem greiddu atkvæði síðastir, gáfu íslenska laginu 12 stig.
Tyrkir, Grikkir, og Rússar börðust um efstu sætin framan af atkvæðagreiðslunni en síðan komust Úkraína og Armenía einnig í toppbaráttuna. Rússar sigu síðan framúr á lokasprettinum og unnu nokkuð örugglega og fengu 272 stig. Rússneski söngvarinn Dima Bilan söng lagið Believe að þessu sinni en með honum dansaði skautadansarinn Jevgení Plushenko og ungverski fiðluleikarinn Edvin Marton lék undir á Stradivariusfiðlu. Bilan, sem nýtur mikilla vinsælda í Rússlandi og öðrum fyrrum Sovétlýðveldum, varð í öðru sæti í keppninni fyrir tveimur árum þegar finnska skrímslahljómsveitin Lordi vann nokkuð óvænt.
Í öðru og þriðja sæti urðu lögin frá Úkraínu og Grikklandi.
Noregur hlaut langflest stig af Norðurlöndunum og var megnið af atkvæðagreiðslunni í kringum fimmta sæti og endaði þar með 182 stig. Ísland fékk 64 stig í 14. sæti, Danmörk fékk 60 stig í 15. sæti, Svíþjóð 47 stig í 18. sæti og Finnland 35 stig í 22. sæti.
Íslendingar gáfu Svíum þrjú stig, Finnum sjö stig, Frökkum átta stig, Norðmönnum tíu stig og Dönum tólf stig.
Úrslitin í Eurovision söngvakeppninni
Til baka







Senda inn efni


