[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Staður og stund

Sigur Rós

Sigur Rós mbl.is/Eggert

Veröld/Fólk | Morgunblaðið | 23.6.2008 | 05:30

Gagnrýnendur lofa Sigur Rós

Nýjasta plata Sigur Rósar, Með suð í eyrum við spilum endalaust, kemur formlega út í dag, en í nokkurn tíma hefur verið hægt að hlusta á hana á heimasíðu hljómsveitarinnar.

Dómar um hana hafa þegar birst í nokkrum erlendum blöðum og eru gagnrýnendur mjög hrifnir af plötunni sem þykir talsvert frábrugðin fyrri verkum Sigur Rósar.

Gagnrýnandi breska dagblaðsins Guardian segir hana sólargeisla úr óvæntri átt og andrúmsloftið á henni hlýtt og gleðilegt. Hann lofar sérstaklega lagið „Ára bát“ sem hann segir metnaðarfyllstu tónsmíð sveitarinnar frá upphafi.

Gagnrýnandi Independent er sömuleiðis jákvæður og segir plötuna aðgengilegri en fyrri plötur. „Þessi fimmta plata hljómsveitarinnar inniheldur, sumum heitum aðdáendum hennar til mikillar skelfingar, nokkur lög sem hægt væri að kalla popplög,“ segir hann og lýkur máli sínu á þessum orðum. „Það klingir ekki lengur í álfabjöllum hjá Sigur Rós, en það gæti farið að klingja í peningakössum þeirra í staðinn.“

Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.

Fara til baka Til baka

 

Veröld/Fólk / 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir