
Lúxusklósett frá Kína. mbl.is
Vanrækti konuna á klósettinu
Bloggað um fréttina
-
Markús frá DjúpalækFréttaskýring; hvers vegna þetta gerðist
-
Heidi StrandTrist
-
LiljanEinhentur?
-
Guðrún Emilía GuðnadóttirÖrugglefa ekki á lúxus klósetti.
-
Jakob Falur KristinssonKlósettferð
-
Bergur ThorbergKlósettskrímsli
Maður hefur verið dæmdur til sex mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar í Kansas í Bandaríkjunum fyrir að koma ekki fatlaðri unnustu sinni til aðstoðar. Líkami konunnar gréri fastur við klósettsetu á heimili þeirra í febrúar á þessu ári.
Maðurinn var upphaflega dæmdur til sex mánaða fangelsisvistar en dómurinn yfir honum var mildaður eftir að konan bað honum vægðar.
„Hún telur hann ekki bera ábyrgð á aðstæðum sínum," segir skipaður lögfræðingur konunnar.
Málið komast upp er Kory McFarren hrindi í yfirvöld í febrúar á þessu ári og lýsti áhyggjum af konunni. Sagði hann hana hafa neitað að koma út af baðherberginu í tvö ár.
Læknar telja að hún hafi setið samfleytt á klósettinu í a.m.k. sex mánuði og að á þeim tíma hafi sár á líkama hennar gróið saman við klósettsetuna.
Konan er nú undir læknishendi og í umsjón forráðamanna sem henni voru skipaðir.
McFarren var einnig fundinn sekur um ósæmilegt afhæfi gagnvart unglingi í mars á þessu ári.
Til baka







Senda inn efni