Mamma Mia! langvinsælasta mynd sumarsins?
Bloggað um fréttina
-
Bjarni Thor KristinssonTónlistin gerir útslagið
-
Doddi - Þorsteinn G. JónssonÍsland er öðruvísi, og það er bara allt í lagi!
Grín-spæjaramyndin Get Smart með þeim Steve Carrell og Anne Hathaway fer beina leið á topp bíólistans og hafa tæplega 7 þúsund gestir borgað sig inn á hana fyrstu fimm sýningardagana. Stóru fréttirnar á listanum eru þó þær að Mamma Mia! hefur sætaskipti við Leðurblökumanninn, en myndirnar skiptast á öðru og þriðja sætinu. Það þýðir að allt bendir til þess að Mamma Mia!, sem bætir sig töluvert á milli vikna, er líkleg til þess að skáka The Dark Knight sem vinsælasta mynd sumarsins – og yrði Ísland þá sjálfsagt eitt örfárra landa í hinum siðmenntaða heimi þar sem Blaki væri ekki sigurvegari sumarsins (þótt þetta gæti vakið efasemdir um hversu siðmenntuð við erum).
Nú hafa nefnilega 72 þúsund manns séð Mamma Mia! en „aðeins“ 60 þúsund Blaka – og virðast Meryl Streep og félagar á töluvert meiri siglingu.
Múmía, samsæriskenningar og Ástargúrúar slá ekki í gegn
Toppmynd síðustu viku, þriðja (eða fjórða ef Scorpion King er talin með) Mummy-myndin, fellur alla leið niður í fimmta sæti en getur þó huggað sig við að enn neðar er nýja X-Files myndin, sem nær aðeins sjötta sæti listans. Sú staðreynd að hún mátti láta sér hálfa stjörnu duga hjá gagnrýnanda Morgunblaðsins í gær bendir til þess að hún verði hér, líkt og ytra, stærsta „flopp“ sumarsins. Þar fær hún þó verðuga samkeppni frá Ástargúrú Mike Myers sem kúrir í níunda sætinu og herma illkvittnar raddir ytra að ferill Mike Myers hafi í kjölfarið verið sendur á gjörgæsluna.Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.
Til baka







Senda inn efni
