Blindir gagnrýna nýjustu mynd Julianne Moore
Bloggað um fréttina
-
Kristinn Halldór EinarssonKvikmyndin Blindness - Hörð gagnrýni á
-
Ómar Ingi FriðleifssonHér má Sjá fyrstu 5 mínúturnar af þessari umdeildu
-
Hjalti GarðarssonEru þeir búnir að sjá myndina?
-
Guðmundur ÁsgeirssonÓfrumlegur Nóbelsverðlaunahafi
-
Axel Jóhann HallgrímssonEr sjón er sögu ríkari?
-
Vinir Ketils bónda, áhugamannafélagNú spyr ég af fávisku minni
Talið er að þrýstihópar muni sniðganga nýjustu kvikmynd Julianne Moore, Blindness, þar sem þeir segja að í myndinni sé blindum líst sem skepnum. Í kvikmyndinni, sem er byggð á sögu Nóbelsverðlaunahafans Jose Saramago, missa allir íbúar ónefndrar borgar sjónina smám saman utan eins. Myndin var opnunarmyndin á kvikmyndahátíðinni í Cannes í vor.
Hótar Landsamband blindra í Bandaríkjunum því að hvetja fólk til þess að sniðganga myndina en hún verður frumsýnd í 75 kvikmyndahúsum í 21 ríki í Bandaríkjunum á morgun.
Í umsögn Birtu Björnsdóttur um myndina í Morgunblaðinu í vor segir að myndin veki upp spurningar um eðli mannsins í erfiðum aðstæðum og varpar ljósi á hversu grunnt er í raun á villimanninum í okkur öllum. „Leikstjórinn, Fernando Meirelles, sagði þessa hugmynd vera meðal þess sem heillaði hann við bókina. Hann hafði í raun beðið rithöfundinn Saramago um leyfi til að mynda söguna fyrir margt löngu en hann ekki tekið það í mál. „Hann sagði kvikmyndir eyðileggja ímyndunaraflið og þar með góða sögu,“ sagði Meirelles á blaðamannafundi eftir frumsýningu hennar í Cannes í maí.
Auk Moore fara þeir Gael Garcia Bernal og Danny Glover með aðalhlutverk í myndinni.
Til baka







Senda inn efni
