Fyrstu myndirnar af hlutverki Höllu Vilhjálmsdóttur í hlutverki afturgöngu í bresku stórmyndinni Ghost Machine hafa nú verið gerðar opinberar. Eins og greint var frá í Morgunblaðinu fyrir nokkru leikur Halla eitt af stærstu hlutverkunum í myndinni, en tökur hafa staðið yfir í gömlu fangelsi í Belfast undanfarnar vikur.
„Ég leik konu sem hefur fengið mikla þjálfun í bardagalistum og er svona hryðjuverka-súperheili,“ segir Halla um hlutverk sitt, en myndin hefst á því að karakter hennar er tekinn af lífi og gengur svo aftur og hefnir sín á óvinum sínum.
„Ég er í förðun í fjóra til fimm tíma á dag og verð mjög ógeðsleg. Þannig að ég þarf alltaf að mæta fyrst á svæðið og fara síðust,“ segir Halla.