[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Staður og stund

Hugh Hefner með  Bridget Marquardt, Holly Madison og Kendru Wilkinson þegar þau bjuggu fjögur saman.

Hugh Hefner með Bridget Marquardt, Holly Madison og Kendru Wilkinson þegar þau bjuggu fjögur saman. Reuters

Veröld/Fólk | mbl.is | 19.12.2008 | 12:23

Söknuður á Playboy-setrinu

Playboy-kóngurinn Hugh Hefner er nú sagður þjást af eftirsjá og söknuði vegna fyrirhugaðs brúðkaups  fyrrum kærustu hans Kendru Wilkinson  og fótboltakappans Hank Baskett næsta sumar. 

„Það getur komið upp sú stund við athöfnina að ég finni til efasmda,” segir Hefner sem hefur fallist á að leiða brúðina upp að altarinu. Þá segist hann hugsanlega verða að hætta við það en að ekki komi þó til grein að hann dragi samþykki sitt fyrir brúkaupinu til baka.

Önnur kærasta Hefners Bridget Marquardt verður brúðarmeyja Wilkinson en ekki er vitað til þess að önnur fyrrum kærasta hans Holly Madison fari með hlutverk við brúðkaupið. Madison er nú í sambandi við töframanninn Criss Angel en stúlkurnar þrjár bjuggu allar með Hefner um nokkurt skeið.

Tvíburarnir Karissa og Kristina Shannon, sem eru nítján ára, hafa nú tekið sess þeirra Wilkinson og Madison á Playboy-setrinu og segir Marquardt stemninguna mjög breytta„Stemningin á setrinu er allt önnur. Ekki slæm, bara öðruvísi. Ég er ekki mikið heima,” segir hún.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Veröld/Fólk / 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir