[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Staður og stund

Blóðsugur.

Blóðsugur.

Veröld/Fólk | AFP | 24.2.2009 | 10:20

Blóðsugur björguðu hendinni

Skurðlæknar sem notuðu blóðsugur þegar þeir festu hönd aftur á mann sem varð fyrir hákarlaárás á Bondi ströndinni í Sydney, segja að um lítið kraftaverk hafi verið að ræða.

2,5 metra langur hvítur hákarl réðst á Glenn Orgias, 33 ára brimbrettakappa, í sjónum við Bondi ströndina 12. febrúar sl. Orgias var fluttur tafarlaust á sjúkrahús en minnstu munaði að höndin losnaði alveg af en hún hékk á 3 sentímetrum af húð. Lýtalæknirinn Kevin Ho sagði að litlar líkur væru á að hægt væri að festa höndina aftur á Orgias.

„Hinsvegar ... miðað við almenna heilsu hans og hversu fljótt hann var fluttur á skurðarborðið þá var mögulegt að festa höndina aftur á,“ sagði hann við blaðamenn. Ho sagði að með því að nota blóðsugur hefði verið hægt að koma blóðstreyminu aftur í gang og sagðist hann vongóður um að Orgias fengi mátt í höndina og gæti notað hana aftur.

„Það er ekki öll hætta liðin hjá en Orgias hefur náð það miklum bata að ég held það sé óhætt að tala um lífið kraftaverk og þetta sýnir hversu hraustur hann er.“ Orgias þakkaði frönskum brimbrettakappa fyrir að hafa bjargað lífi sínu en sá klemmdi fyrir æðarnar í handleggnum til að koma í veg fyrir að Orgias blæddi út.

Um var að ræða aðra hákarlaárásina í Ástralíu á jafnmörgum dögum en ráðist var á kafara við höfnina í Sydney deginum áður. Sá missti hand- og fótlegg. Talið er að þetta sé fyrsta árás hvíts hákarls við strendur borgarinnar.

Síðasta banvæna hákarlaárásin í Ástralíu átti sér stað árið 1963 en sé litið yfir síðustu tvær aldirnar eru dauðsföllin alls 194.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Veröld/Fólk / Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Í gær
Miðvikudaginn 17. mars
Þriðjudaginn 16. mars
Mánudaginn 15. mars
Sunnudaginn 14. mars
Laugardaginn 13. mars
Föstudaginn 12. mars
Fimmtudaginn 11. mars
Miðvikudaginn 10. mars
Þriðjudaginn 9. mars
Mánudaginn 8. mars
Laugardaginn 6. mars
Föstudaginn 5. mars
Fimmtudaginn 4. mars
Miðvikudaginn 3. mars
Þriðjudaginn 2. mars
Mánudaginn 1. mars
Laugardaginn 27. febrúar
Miðvikudaginn 24. febrúar
Mánudaginn 22. febrúar
Sunnudaginn 21. febrúar
Laugardaginn 20. febrúar
Fimmtudaginn 18. febrúar
Miðvikudaginn 17. febrúar