Bareigandi dæmdur í fangelsi fyrir hávaða
Bloggað um fréttina
-
Friðrik Árni FriðrikssonFordæmisgefandi dómur
Spænskur bareigandi var í dag dæmdur í 5,5 árs fangelsi fyrir að hafa pyntað nágranna sína með því að spila háværa tónlist á barnum. Er þetta þyngsti dómur í slíku máli sem fallið hefur á Spáni en barnum var lokað árið 2006.
Samkvæmt dómsskjölum héraðsdóms í Barcelona þurftu þrír nágrannar Donegal barsins að leita sér læknishjálpar vegna þunglyndis vegna hávaða frá barnum. Á Donegal barnum var spiluð tónlist frá klukkan 9 á morgnana til klukkan þrjú á nóttunni alla daga vikunnar og voru fimm öflugir hátalarar sem sáu til þess að tónlistin hljómaði langt út fyrir barinn. Hins vegar hafði barinn ekki heimild til þess að vera með jafn öflugt hljómkerfi og notað var á barnum og var staðnum því lokað af bæjaryfirvöldum árið 2006.
Til baka







Senda inn efni