Marilyn French látin
Bloggađ um fréttina
-
Margrét SigurđardóttirKvennaklósettiđ breytti lífi mínu
-
Edda Agnarsdóttir"Kvennaklósettiđ" til alls fyrst!
Bandaríski rithöfundurinn Marilyn French lést um síđustu helgi í New York af völdum hjartaáfalls, 79 ára ađ aldri. French var kunnur femínisti og fyrsta skáldsaga hennar, Kvennaklósettiđ, sem kom út áriđ 1977 og fjallađi um uppreisn húsmóđur gegn karlaveldinu, varđ metsölubók um allan heim.
Kvennaklósettiđ, eđa The Women's Room eins og bókin heitir á frummálinu, segir af baráttu húsmóđur fyrir frelsi og sjálfstćđi en sögusviđiđ er sjötti áratugurinn. French var kölluđ karlahatari eftir útkomu bókarinnar („anti-male“) en á einum stađ segir: „Allir karlmenn eru nauđgarar, og ţađ er ţađ eina sem ţeir eru. Ţeir nauđga okkur međ augunum, međ lögum sínum og siđum.“
French lauk viđ skáldsögu fyrir skömmu, sem kemur út í haust. Ţá vann hún ađ endurminningabók ţegar hún lést.
French fćddist í Brooklyn og lauk meistaraprófi í heimspeki og bókmenntum. Hún lauk síđar doktorsnámi frá Harvard háskóla og fékk prófessorsstöđu viđ Holy Cross háskólann í Worcester í Massachusetts.
Hún fékk krabbamein í vélinda áriđ 1992 og lá m.a. í dái í 10 daga. Hún lýsti baráttunni viđ veikindin í bókinni Season in Hell: A Memoir.
French lćtur eftir sig tvö uppkomin börn.
Til baka







Senda inn efni
