Leikur Pihl í sjónvarpinu og á hljóðfæri í kvöld
Hin danska Charlotte Munck er leikari. Sjónvarpsáhorfendur eru farnir að þekkja karakter Önnu Pihl, sem hún leikur í samnefndri þáttaröð sem sýnd er í Ríkissjónvarpinu, en Munck er nú komin hingað til lands sem hljóðfæraleikari. Hún er stödd hér ásamt hljómsveit sinni, Hess is More, sem heldur tónleika í Norræna húsinu í kvöld.
„Það var strax um borð í flugvélinni sem manneskja kom til mín og sagðist hafa verið að horfa á mig í sjónvarpinu á sunnudaginn,“ sagði Munck í gær. Hún segist finna vel fyrir því að landsmenn fylgist margir með þáttunum.
Munck segist hafa verið viðloðandi tónlist allt sitt líf. „Lengi vel stefndi ég að því að starfa eingöngu við hana. Það var áður en ég komst að því að leiklistin var líka valmöguleiki,“ sagði hún.
Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.
Til baka







Senda inn efni
