Ótrúlegar sögur af Jackson

Hver var Michael Jackson? Jú, tónlistarmaður og dansari, hæfileikaríkur og goðsögn í lifanda lífi, bjó í Hvergilandi og virtist heldur vilja umgangast börn en fullorðna. Sögurnar af Jackson eru flestar lyginni líkastar, sumar sannar en aðrar ekki. Blaðamaður tíndi nokkrar til.

1. Jackson og Fílamaðurinn

Sagan segir að kóngurinn hafi keypt beinagrind Fílamannsins svonefnda, Josephs Merrick, sem David Lynch gerði kvikmynd um. Þessi stórskemmtilega saga um Jackson var á kreiki á 9. og 10. áratugnum. Jackson sagði þetta bölvaða vitleysu, hann hefði ekkert við beinin að gera.

2. Jackson og geimstöðin

Jackson var spurður að því fyrir sjö árum hvort það væri rétt að hann hefði hug á því að fara til tunglsins. Hann svaraði því til að orðrómurinn væri ekki alveg úr lausu lofti gripinn. Í kjölfarið fór sú saga á kreik að hann ætlaði að reisa geimstöð á tunglinu. Hún hefur ekki risið enn svo vitað sé.

3. Hárið brennur

Árið 1984 kviknaði í hárinu á Jackson þegar hann var við tökur á Pepsi-auglýsingu. Neistar úr flugeldum ollu hárbrunanum og var Jackson fluttur á sjúkrahús. Hann sagði aðdáendum sínum að hafa ekki áhyggjur þar sem hann lá á börunum á leið í sjúkrabílinn.

4. Arabakonan Jackson

Jackson hefur nokkrum sinnum brugðið sér í dulargervi til að fá að vera í friði. Fyrir þremur árum skellti hann sér í búrku og þóttist vera kona, til að geta skroppið á útimarkað í Barein. Þessi brella hefði kannski virkað ef hann hefði ekki verið með þrjú börn í eftirdragi, öll vestræn í útliti.

5. Vélmennið Jackson

Popparinn átti sér þann draum að risavaxin, vélknúin útgáfa af honum stæði skammt frá Las Vegas. Vélmennið átti að dansa við lagið „Thriller“ og skjóta leysigeislum úr augum sér. Það hefði nú verið gaman að sjá það...

6. Súrefniskassinn

Sagan af því að Jackson hafi sofið í súrefniskassa á 9. áratugnum er flestum kunn en ekki víst að hún sé sönn. Jafnan eru ungbörn höfð í slíkum kössum og þar sem Jackson var æskudýrkandi mikill er sannarlega ekki ómögulegt að sagan sé sönn.

7. Gúmmíbirni og sílófón, takk

Jackson mun hafa beðið um skál af gúmmíbjarnahlaupi og sílófón þegar hann dvaldi á hóteli í London fyrir tveimur árum. Spurning hvort það hafi verið hluti af herbergisþjónustunni.

8. Neyddur í hreðjatak

Einhver þekktasta danshreyfing hans er hreðjatakið, þ.e. að grípa leiftursnöggt um hreðjar sér og jafnvel rísa upp á tærnar um leið. „Tónlistin neyðir mig til þess!“ svaraði Jackson, þegar hann var spurður að því af hverju hann gerði þetta.

9. Díana var ekki dónaleg!

Jackson ákvað að sleppa því að syngja lagið „Dirty Diana“ á tónleikum í London, í virðingarskyni við Díönu prinsessu. Og talandi um dónaskap þá mun popparinn hafa skammast sín gríðarlega fyrir hönd LaToyu systur sinnar þegar hún lét birta af sér nektarmyndir. Sagan segir að fyrir vikið hafi Jackson orðið gríðarlega viðkvæmur fyrir orðinu „brjóst“ og alls ekki viljað heyra það.

10. Dularfulla danssporið

Sú saga hefur flogið fjöllum hærra að Jackson hafi ætlað að frumsýna glænýtt og stórkostlegt dansspor á fyrstu tónleikum sínum af 50 í 02-höllinni í London. Nýja sporið var víst í ætt við tunglgönguna frægu en aðdáendur Jacksons fá víst aldrei að sjá það. helgisnaer@mbl.is

Viðbrögð stjarnanna...

Ég hef ekki getað hætt að gráta yfir þessum sorglegu fréttum. Heimurinn hefur misst einn af sínum gullmolum, en tónlist hans mun lifa að eilífu.“

Madonna Ég get ekki hætt að gráta. Þessi hörmung er yfirþyrmandi. Ég á erfitt með að ímynda mér þetta. Hjarta mitt brennur. Ég bið fyrir börnum hans og fjölskyldu.“

Diana Ross

Ég er enn að halda í vonina um að þetta sé ekki satt. Michael var í góðu formi þar sem hann var að æfa fyrir tónleikaröð sína. Hann var varkár á mataræði og síðast þegar ég heyrði frá honum var hann við hestaheilsu. Þess vegna eru þessar fréttir mikið áfall.“

Uri Geller, vinur

Við höfum misst gleði okkar. Hann hefur misst kvöl sína. Hann var undir stöðugu áreiti frá pressunni og allt sem hann vildi var að vera stórkostlegasti skemmtikraftur heims... sem hann var.“

Séra Jesse Jackson

Guðdómleikinn leiddi sálir okkar saman og leyfði okkur að gera það sem við gerðum á níunda áratugnum. Enn í dag er sú tónlist spiluð í öllum heimshornum. Ástæðan er sú að hann hafði þetta allt – hæfileika, dyggð og fagmennsku. Ég hef misst litla bróður minn og hluti sálar minnar fór með honum.“

Quincy Jones, upptökustjóri

Ég er sorgmædd og ringluð tilfinningalega. Hjarta mitt er brostið fyrir hönd barna hans, sem ég veit að skiptu hann öllu, og fjölskyldu. Þetta er svo mikill missir á mörgum sviðum að ég finn ekki réttu orðin.“

Lisa Marie Presley, fyrrum eiginkona

Það verður aldrei annar Michael Jackson. Fyrstu tónleikarnir sem ég sá voru með honum. Það var í Madison Square Garden þegar ég var átta ára. Ég væri ekki að gera það sem ég geri í dag ef ekki væri fyrir hann. Hann færði mér gleði sem barn og sýndi mér veginn. Hann var tónlist. Punktur.“

Lenny Kravitz

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant