Venjulegar konur inn - þvengmjóar fyrirsætur út
Bloggað um fréttina
-
Kolbrún Guðríður HaraldsdóttirSkref í rétt átt
-
Árni Viðar BjörgvinssonJá það var laglegt!
-
Sigríður SigurðardóttirPattaralegar, raunverulegar og...
Vinsælasta tímaritið fyrir konur í Þýskalandi ætlar að hætta að birta myndir af atvinnufyrirsætum í blaðinu. Þess í stað verða birta myndir af „raunverulegum konum“, að því er forsvarsmenn tímaritsins segja. Þeir vilja með þessu sporna gegn þeim óheilbrigðum viðmiðum sem hafi verið sett með því að birta myndir af tágrönnum fegurðardrottningum.


Venjulegar konur eins og Angela Merkel, kanslari Þýskalands, munu fá aukið vægi í tískutímaritinu Birgitte. Reuters
Ritstjóri Birgitte, sem er gefið út á hálfsmánaðar fresti, segir að á næsta ári muni tímaritið birta myndir af þekktum konum og venjulegum lesendum í myndasyrpum tímaritsins, þar sem fjallað er um fegurð, heilbrigði og tísku.
Andreas Lebert segir að tímaritið sé að svara lesendum sínum sem segjast vera orðnir langþreyttir á að sjá fyrirsætur sem séu eins og beinagrindur, og séu einnig mun léttari heldur en venjulegar konur.
Til baka







Senda inn efni