[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Staður og stund

Sigur Rós á tónleikum.

Sigur Rós á tónleikum. mbl.is/Kristinn

Veröld/Fólk | mbl.is | 9.12.2009 | 22:32

Ágætis byrjun meðal 30. bestu platna áratugarins

Tónlistartímarit keppast nú við að gefa út lista yfir bestu plötur áratugarins sem er að líða. Bandaríska tónlistartímaritið Rolling Stone hefur nú gefið út lista yfir 100 bestu plöturnar. Það vekur athygli að íslenska hljómsveitin Sigur Rós á tvær plötur á listanum og Björk eina, en Ágætis Byrjun er í 29. sæti.

Hún var gefin út árið 1999 á Íslandi, en kom út ári seinna í Bretlandi og tveimur árum seinna í Bandaríkjunum.

Það er hins vegar platan Kid A, sem breska hljómsveitin Radiohead gaf út árið 2000, sem poppskríbentar Rolling Stone segja að segja besta plata áratugarins. 

Næst á eftir er það frumraun The Strokes, Is This It? frá árinu 2001. Wilco eru svo í þriðja sæti með plötuna Yankee Hotel Foxtrot, en hún var gefin út árið 2002. 

Platan Vespertine, sem Björk gaf út árið árið 2001, er í 67. sæti listans.

Þriðja plata Sigur Rósar, (), hafnar í 76. sæti listans.

Fram kemur á vef Rolling Stone að yfir 100 tónlistarmenn, gagnrýnendur og aðrir sem eru öllum tónlistarhnútum kunnugir hafi verið fengnir til að velja plöturnar á listann.

Listann má sjá hér.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Fimmtudaginn 18. mars
Miðvikudaginn 17. mars