[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Staður og stund

Facebook nýtur gríðarlegra vinsælda hjá netverjum, en þar eins og annars staðar á netinu, er nauðsynlegt að hafa varann á.

Facebook nýtur gríðarlegra vinsælda hjá netverjum, en þar eins og annars staðar á netinu, er nauðsynlegt að hafa varann á. Árni Sæberg

Veröld/Fólk | mbl.is | 7.2.2010 | 18:00

100 óboðnir gestir mættu vegna Facebook

Partý sem unglingspiltur hélt í Bretlandi í fjarveru foreldra sinna fór algjörlega úr böndunum eftir að hann auglýsti það á Facebook með opinni síðu. Þegar foreldrar hans sneru aftur heim eftir helgarfrí var búið að leggja heimili þeirra í ríkramannahverfinu Kingston-upon-Thames í rúst.

Sonur þeirra, hinn 16 ára gamli Aneesh, gengur í einkaskólann Westminster og auglýsti meðal skólafélaga sinna á Facebook að hann væri einn heima og ætlaði að halda partý. Hann virðist hinsvegar ekki hafa leitt hugann að því hversu fiskisagan flýgur á internetinu þegar óvarlega er farið því um kvöldið mættu rúmlega 100 óboðnir gestir, lögðu húsið í rúst og skildu eftir sig slóð eyðileggingar.

Sex lögreglubílar og tveir sjúkrabílar voru kallaðir á staðinn til að ná stjórn á aðstæðum eftir að partýið fór úr böndunum. Nágrannar voru í áfalli og segja að þegar partýið stóð sem hæst hafi hömlulausir gestirnir m.a. migið út um glugga hússins.

„Það voru unglingar um alla götuna, öskrandi og gargandi og með ótrúleg læti," segir hin 47 ára gamla nágrannkona Sally Manton. „Þau voru ælandi og grýtandi hlutum út um gluggana, þar á meðal viftu. Þau migu út um gluggana og þú gast ekki séð í grasið í garðinum fyrir flöskum og dósum."

Fjölskyldan hefur neitað að tjá sig um málið í fjölmiðlum, en Facebook síða Aneesh er nú aðeins opin fyrir nánustu vini.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Veröld/Fólk / Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Í gær
Fimmtudaginn 18. mars
Miðvikudaginn 17. mars
Þriðjudaginn 16. mars
Mánudaginn 15. mars
Sunnudaginn 14. mars
Laugardaginn 13. mars
Föstudaginn 12. mars
Fimmtudaginn 11. mars
Miðvikudaginn 10. mars
Þriðjudaginn 9. mars
Mánudaginn 8. mars
Laugardaginn 6. mars
Föstudaginn 5. mars
Fimmtudaginn 4. mars
Miðvikudaginn 3. mars
Þriðjudaginn 2. mars
Mánudaginn 1. mars
Laugardaginn 27. febrúar
Miðvikudaginn 24. febrúar
Mánudaginn 22. febrúar
Sunnudaginn 21. febrúar
Laugardaginn 20. febrúar
Fimmtudaginn 18. febrúar