[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Staður og stund

Atriði úr Antichrist.

Atriði úr Antichrist.

Veröld/Fólk | mbl.is | 7.2.2010 | 23:21

Antichrist sigurvegari

Kvikmynd Lars von Trier, Antichrist, fékk sjö verðlaun í kvöld þegar dönsku kvikmyndaverðlaunin voru veitt í 26. skipti. Myndin var valin kvikmynd ársins, von Trier var valinn besti leikstjórinn og handrit myndarinnar var talið það besta. Lars von Trier fékk einnig norrænu kvikmyndaverðlaunin fyrr í vetur fyrir Antichrist.

Myndin fékk einnig verðlaun fyrir klippingu, hljóð, tæknibrellur og kvikmyndatöku. 

Kvikmynd Niels Malmros’, Kærestesorger, sem var tilnefnd til 14 verðlauna, fékk aðeins þrenn fyrir búninga, förðun og leikmynd. Myndin, sem fjallar um unglinga í Árósum á sjöunda áratug síðustu aldar hefur hins vegar notið lýðhylli og alls hafa yfir 175 þúsund manns séð hana. 

Paprika Stein var valin besta leikkonan í aðalhlutverki fyrir myndina Applaus. Þetta er í þriðja skipti, sem Stein vinnur þessi verðlaun.  Lars Mikkelsen var valinn besti leikari í aðalhlutverki fyrir myndina Headhunter og meðleikari hans, Henning Moritzen, var valinn besti leikarinn í aukahlutverki. Pernille Vallentin var valin besta leikkonan í aukahlutverki fyrir   Fri os fra det onde. 

Almenningur gat einnig kosið mynd ársins og valdi myndina  Sorte kugler eftir Anders Matthesens. Þetta er sú mynd sem flestir Danir sáu á síðasta ári eða alls rúmlega 402 þúsund manns.

Teiknimyndin Up og Slumdog Millionaire fengu einnig sérstök verðlaun á hátíðinni. 

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Í gær
Miðvikudaginn 17. mars
Þriðjudaginn 16. mars
Mánudaginn 15. mars