[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Staður og stund

Samantha Ronson og Lindsay Lohan.

Samantha Ronson og Lindsay Lohan. AP

Veröld/Fólk | BANG ShowBiz | 8.2.2010 | 16:58

Samantha beitti Lindsay Lohan ofbeldi

Lindsay Lohan var beitt ofbeldi af fyrrverandi kærustu sinni, Samönthu Ronson, að sögn vina hennar. Samband hennar við plötusnúðinn var stormasamt og hefur Lindsay nú sagt vinum sínum frá því að það hafi á köflum verið afar ofbeldisfullt.

Haft er eftir ónefndum „vini“ Lohan að hún hafi stundum verið bólgin í framan eftir að hafa hitt Samönthu, sem hafi kýlt hana og haldið fyrir hálsinn á henni. Þrátt fyrir að þær hafi formlega slitið sambandinu tala þær Lindsay og Samantha engu að síður ennþá stundum saman, þótt það sé Lindsay mjög erfitt. 

„Vinur“ Lindsay segir að samband þeirra sé mjög óheilbrigt. „Þær eru ekki saman, en eru það samt. Ég hélt ég myndi aldrei segja þetta, en ég finn virkilega til með Lindsay. Hún er gjörsamlega týnd. Hún er alein og á enga vini til að snúa sér til."

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Lindsay sakar fyrrverandi kærustu sína um vafasama hegðun. Í síðustu ýjaði hún að því á Twitter síðunni sinni að Samantha héldi við stjúpbróður sinn en væri líka í sambandi við tvær stelpur.  Þrátt fyrir að hafa beint skilaboðunum beint til Samönthu hefur hún ekki svarað ásökununum á Twitter.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Í gær
Föstudaginn 19. mars
Fimmtudaginn 18. mars
Miðvikudaginn 17. mars