[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Staður og stund

Charlie Sheen var handtekinn á jóladag.

Charlie Sheen var handtekinn á jóladag. HO

Veröld/Fólk | mbl.is | 9.2.2010 | 12:59

Charlie Sheen ákærður

Leikarinn Charlie Sheen hefur verið ákærður fyrir að ráðast á konu sína og hóta henni. Atburðurinn átti sér stað á jóladag. 

Atburðurinn varð ekki til þess að hjónin tækju ákvörðun um að slíta sambandi. Sheen og kona hans, Brooke Mueller, yfirgáfu dómhúsið saman eftir að ákæran hafði verið birt. Þau fóru síðan saman í skíðaferðalag til Aspen í Colorado.

Lögfræðingur Muellers sagði að skjólstæðingur sinn vildi að þessu máli lyki sem fyrst svo að hún og maður hennar gætu haldið áfram að lifa lífi sínu. Málið verður tekið fyrir hjá dómara 15. mars nk. Sheen getur átt von á allt að þriggja ára fangelsi verði hann fundinn sekur.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Miðvikudaginn 17. mars
Þriðjudaginn 16. mars