[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Staður og stund

Paul Gascoigne.

Paul Gascoigne.

Veröld/Fólk | mbl.is | 9.2.2010 | 17:12

Gascoigne enn og aftur í vandræðum

Enski knattspyrnumaðurinn fyrrverandi Paul Gascoigne hefur enn lent í vandræðum en að sögn breskra fjölmiðla hefur hann verið handtekinn tvisvar í vikunni fyrir ölvun og óspektir.

Gascoigne var á sunnudag handtekinn í Yorkshire ásamt vini sínum grunaður um ölvun við akstur. Hann eyddi nóttinni á lögreglustöð en var látinn laus morguninn eftir.

Síðar þann dag var lögreglan kvödd að hóteli í Darlington þar sem þeir vinirnir höfðu farið mikinn. Að sögn breska blaðsins Guardian var Gascoigne látinn laus án ákæru en vinur hans þurfti að greiða sekt fyrir óspektir á almannafæri.

Gascoigne, sem er 42 ára, var talinn einn efnilegasti knattspyrnumaður Englendinga á níunda áratug síðustu aldar. Hann lenti hins vegar oft í vandræðum vegna áfengisneyslu og óláta og hefur einnig átt við geðræn vandamál að stríða sem rakin voru til áfengisneyslu.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Föstudaginn 19. mars
Fimmtudaginn 18. mars
Miðvikudaginn 17. mars