Jolie heimsótti börn frá Haítí
Bandaríska kvikmyndaleikkonan Angelina Jolie kom í morgun til Dóminíska lýðveldisins þar sem hún ræddi við stjórnvöld og heimsótti börn frá Haítí, sem liggja á sjúkrahúsi í Santo Domingo.
Fjöldi barna, sem slasaðist í jarðskjálfanum á Haítí í janúar, liggur á sjúkrahúsum í nágrannaríkinu. Jolie, sem er velgjörðasendiherra Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna, heimsótti Dario Contreas sjúkraúsið í Dóminíska lýðveldinu ásamt Gonzalo Vargas Llosa, yfirmanni Flóttamannahjálpar SÞ á Haítí og Dóminíska lýðveldinu en hann er sonur rithöfundarins Mario Vargas Llosa.
Jolie og Brad Pitt, sambýlismaður hennar, gáfu samtökunum Læknum án landamæra á Haítí 1 milljón dala í kjölfar jarðskjálftans, sem reið yfir 12 janúar.
Til baka







Senda inn efni
