[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Staður og stund

Elton John

Elton John Reuters

Veröld/Fólk | mbl.is | 19.2.2010 | 15:50

Elton John: Jesús var samkynhneigður

Breski tónlistarmaðurinn Elton John segir í viðtali við bandaríska tímaritið Parade að Jesús hafi verið afburðagáfaður samkynhneigður karlmaður. Söngvarinn lætur ekki þar við sitja heldur bætir við að Jesús hafi verið samúðarfullur, sáttfús og skilið vandamál mannkynsins.

Talsmaður Ensku biskupakirkjunnar segir að það sé sennilega best að láta fræðimenn um að upplýsa um kenndir og annað sem viðkemur Jesús, að því er segir á vef BBC.

 Elton John segir meðal annars í viðtalinu að Jesús hafi fyrirgefið þeim sem krossfestu hann og að Jesús hafi viljað að við værum sáttfús og ástrík. Elton John segist ekki vita hvað gera mannfólkið jafn grimmt og raun ber vitni. „Reynið að vera samkynhneigð kona í Miðausturlöndum - þú gætir alveg eins verið dáinn," segir hann í viðtalinu sem  verður birt í heild á vef tímaritsins síðar í dag.

Elton John segir það ekki alltaf auðvelt að vera frægur enda laði frægð að sér brjálæðinga. „Díana prinsessa,  Gianni Versace, John Lennon, Michael Jackson, öll dáin. Tveir þeirra voru skotnir fyrir utan heimili sín. Ekkert af þessu hefði gerst ef þau hefði ekki verið fræg. Ég hafði aldrei haft lífvörð fyrr eftir andlát Gianni."

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Í gær
Þriðjudaginn 7. september
Mánudaginn 6. september
Sunnudaginn 5. september
Laugardaginn 4. september
Föstudaginn 3. september