[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Staður og stund

Upphafssíða Leita Verðlaun Reglur Myndir vikunnar
hausmynd

Reglur og leiðbeiningar

Keppnisreglur
Samkeppnin stendur frá 1. desember 2009 til 5. janúar 2010.

Hver þátttakandi má senda inn eins margar myndir og hann vill.

Óheimilt er að senda inn og/eða eigna sér ljósmyndir sem ekki eru teknar af sendanda.

Leyfilegt er að skanna inn framkallaðar myndir eða filmur og senda inn í keppnina.

Engar skorður eru við því hve gamlar myndirnar eru.

Eftir 5. janúar fer skipuð dómnefnd yfir innsendar myndir og velur þrjár bestu til verðlauna. Niðurstaða dómnefndar er endanleg.

Áskilinn er réttur til að hafna hvaða mynd sem er og einnig að breyta fyrirsögn og myndatexta.

Starfsmönnum Árvakurs og Nýherja og fjölskyldum þeirra er ekki heimiluð þátttaka í keppninni.

Keppnin er ekki ætluð atvinnuljósmyndurum.

Innsendar myndir eru eign höfunda, en mbl.is, Morgunblaðið og Nýherji áskilja sér rétt til að birta þær í tengslum við kynningu á keppninni. Þátttakendur eru skráðir á póstlista Nýherja, en geta skráð sig af honum í fyrsta tölvupósti sem þeim berst.

Leiðbeiningar
Áður en hægt er að senda mynd í keppnina þarf að skrá sig sem notanda. Sá möguleiki birtist þegar smellt er á hnappinn "Senda inn mynd" Skráðir notendur geta sent myndir inn að vild með því að gefa upp netfang og lykilorð við sendingu. Ef lykilorð glatast er hægt að fá það sent í tölvupósti. Sú aðgerð stendur til boða þegar mynd er send.

Mynd er send inn með eftirfarandi hætti: Smellið á "Browse"-hnappinn og finnið myndina á tölvunni. Smellið síðan á "Open"-hnappinn þegar myndin hefur verið valin. Slóð á staðsetningu myndarinnar birtist nú í reitnum sem merktur er "Mynd". Athugið að talsverðan tíma getur tekið að lesa inn myndina, allt eftir tengihraða tölvunnar og stærð myndarinnar.

Sláið því næst inn heiti myndar en það er textinn sem birtist fyrir ofan myndina. Skrifið svo lýsingu með myndinni og ýtið í framhaldi á "Senda"

Þegar búið er að senda inn mynd eða myndir er rétt að smella á "Skrá út" til að rjúfa tengingu.

Skráðir notendur geta breytt upplýsingum um mynd eða fjarlægt úr keppninni. Þeim býðst einnig að kaupa myndir sínar útprentaðar á striga.

Gætið að því að aðeins er hægt að senda inn myndir á jpg-sniði RGB.

Vakni frekari spurningar má senda tölvupóst á netfangið ljosmyndakeppni@mbl.is. Athugið að ekki er tekið við myndum í því netfangi. Aðeins er tekið á móti myndum í keppnina í gegnum vefsíðuna sem kemur upp þegar smellt er á "Senda inn mynd".

 
Galleri Lind