[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]

Nýtt á mbl.is

Staður og stund



Quarashi, mbl.is og rokk.is bjóða til samkeppni um besta remixið af Quarashi-lagi.

Frestur til að senda inn lög í keppnina rann út á föstudagskvöld. Á mánudag verður hægt að kjósa um besta lagið, en alls bárust 79 remix af lögunum þremur.

Gestir á mbl.is og rokk.is kjósa um besta remixið. Hljómsveitin sjálf mun síðan veita sérstök Quarashi-verðlaun því lagi sem hún telur best.

Fyrstu verðlaun eru 24 tímar í Stúdíó Sýrlandi, fullkomnasta hljóðveri landsins. Quarashi-verðlaunin eru Pro Tools búnaður frá Hljóðfærahúsinu.

Allir sem taka þátt í kosningunni komast í pott sem dregið verður úr að lokinni atkvæðagreiðslu og fá tíu heppnir Quarashi-bol og nýja diskinn, Guerilla Disco.