Ég læri eitthvað nýtt á hverjum degi í þessum CLEAN detox-kúr. Eitt það besta er að ég get búið til chiahlaup fyrir allt að eina viku í einu ef það er geymt í ísskáp. Svo get á bara tekið skeið og skeið út í bústið. Skil ekki af hverju ég hef ekki fattað þetta fyrr, því hingað til hef ég verið að leggja chia fræ í bleyti á hverju kvöldi fyrir næsta morgun.
Mér finnst líka alveg frábært að Jón Gerald í Kosti skyldi kenna mér að nota hlaup innan úr aloe vera blöðum í bústið. Ég rakst á uppskrift í CLEAN detoxinu, þar sem heilt blað er notað í eitt búst, en aloe vera gelið er mjög losandi. Ég læt nú duga að nota svona 2-3 cm bút út í bústið hverju sinni, en það virkar bæði sem þykking fyrir bústið og svo er það auðvitað losandi, sem skiptir máli þegar hreinsa á eiturefni úr líkamanum..
Eldsnemma í morgun þegar ég stóð í eldhúsinu og undirbjó kjúklingarétt sem ég eldaði í hádeginu fattaði ég allt í einu að mér fannst aftur gaman að elda. Þá gleði hefur skort í langan tíma, en kannski fannst mér það gaman í morgun vegna þess að ég var að undirbúa mat til að deila með fjölskyldunni. Það hefur einhvern veginn ekki verið eins skemmtilegt að elda fyrir mig eina, þótt ég hafi samviskusamlega gert það í CLEAN detox-kúrnum.
Þetta er í fyrsta sinn sem ég kaupi kjúkling frá Litlu GULU HÆNUNNI, en hann fékk ég í Lifandi markaði, svo og allt lífrænt ræktaða grænmetið sem ég eldaði með honum. Þetta varð því snilldar máltíð.
Bústið í morgun var gott. Rúmur bolli af köldu vatni og möndlumjólk til helminga, hálft avókadó, 2 matskeiðar lífrænt möndlusmjör frá Biona, örlítið himalayasalt, 1 mæliskeið af Pulsin' prótíndufti, hálf matskeið kakó, nokkrir dropar af stevíu og 3 cm bútur af hlaupinu innan úr aloe vera blaði.
Myndin sýnir kjúklingaréttinn minn áður en ég setti hann í ofninn.