Takið þátt í að velja þjóðarblómið!

Hér gefst kostur á að taka þátt í vali á þjóðarblóminu, blómi sem gæti haft táknrænt gildi og sem þjónaði hlutverki sem sameiningartákn; blóm sem nýta mætti í kynningar- og fræðslustarfi bæði hér á landi og á erlendum vettvangi.

Skoðanakönnunin byggist á raðvali. Veljið 1 fyrir þá blómplöntu sem helst á skilið að verða þjóðarblómið og síðan þau blóm sem næst því koma ef vill. Hægt er að standa gegn vali á einni blómplöntu með því að setja tölustafinn 7 við hana. Ekki er nauðsynlegt að velja fleiri en eitt blóm.

Skoðanakönnunin stendur fram til 15. október og niðurstaða hennar verður kynnt 22. október.

Blágresi Blágresi (Geranium sylvaticum)
Sæti:
Geldingahnappur Geldingahnappur (Armeria maritima)
Sæti:
Holtasóley Holtasóley (Dryas octopetala)
Sæti:
Lambagras Lambagras (Silene acaulis)
Sæti:
Blóðberg Blóðberg (Thymus praecox ssp. arcticus)
Sæti:
Gleym-mér-ei Gleym-mér-ei (Myosotis arvensis)
Sæti:
Hrafnafífa (fífa) Hrafnafífa (fífa) (Eriophorum scheuchzeri)
Sæti:

Til að gera könnunina sem marktækasta þurfa þátttakendur að skrá kennitölu sína og netfang. Þegar smellt er á „Kjósa“ er sendur tölvupóstur á uppgefið netfang. Í þeim pósti er slóð sem smella verður á til að kosningin sé gild.

Kennitala:
Netfang: