Atburðir sun. 6.5.2012
Fréttir og tilkynningar
6.5.2012
Handverk og hönnun í Ráðhúsi Reykjavíkur
Dagana 3. – 7. maí 2012 verður haldin stór sýning/kynning á íslensku handverki, listiðnaði og hönnun í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Þetta er í sjöunda sinn sem HANDVERK OG HÖNNUN stendur fyrir og skipuleggur þennan viðburð en í fyrsta sinn að vori til. Það er óhætt að segja að sýningunni hafi verið vel tekið undanfarin ár og hefur aðsóknin verið mjög mikil. Þetta er kjörið tækifæri fyrir alla að kynna sér fjölbreytt íslenskt handverk, listiðnað og hönnun. Það eru listamennirnir sjálfir kynna vörur sínar. Gróskan og fjölbreytnin er mikil sem fyrr og að þessu sinni sýna 44 aðilar verk sín. Það er gaman að segja frá því að rúmlega helmingur þátttakenda að þessu sinni hefur ekki tekið í sýningunni áður eða 27 aðilar.
Opnunartími sýningarinnar er:
Fimmtudag 3. maí kl. 16 – 19
Föstudag 4. maí. kl. 10 – 19
Laugardag 5. maí. kl. 10 – 18
Sunnudag 6. maí. kl. 10 – 18
Mánudag 7. maí. Kl. 10 - 19
Staður: Ráðhús Reykjavíkur
Heimilisfang: Ráðhús Reykjavíkur
Póstnúmer/Staður: 101 Reykjavík
Sími: 5632000
Heimilisfang: Ráðhús Reykjavíkur
Póstnúmer/Staður: 101 Reykjavík
Sími: 5632000







Senda inn efni