[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Staður og stund

Hvernig eiga merkin saman?

Veldu stjörnumerki úr valgluggunum að neðan og smelltu svo á Birta.
og

Stjörnuspá 9. febrúar 2010

HRÚTUR 21. mars - 19. apríl
Fátt jafnast á við skemmtilegar stundir í hópi góðra vina. Rök þín eru góð og gild og aðrir eiga erfitt með að andmæla þér.
NAUT 20. apríl - 20. maí
Þú meltir í sífellu það sem er að gerast í kringum þig, það er eins konar sjálfsvörn. Kannski þú sért sá sem kemur öllum að óvörum, hver veit?
TVÍBURAR 21. maí - 20. júní
Það er þér í hag að málamiðlun náist í mikilvægu máli. Njóttu dagsins og láttu ævintýrin fleyta þér áfram til nýrra staða.
KRABBI 21. júní - 22. júlí
Aðdáun er mögnuð hvatning. Látið ekkert koma ykkur á óvart og gefið ykkur tækifæri á að njóta því, það eigið þið skilið. Dagurinn hentar vel til naflaskoðunar.
LJÓN 23. júlí - 22. ágúst
Það er stutt í einhvern stóratburð sem þú þarft að vera reiðubúin/n fyrir hvað sem það kostar. Með silkimjúku röddinni þinni talar þú máli háttvísinnar.
MEYJA 23. ágúst - 22. september
Áhrifasvið þitt eykst um leið og þú kannar ólík menningarsvæði og listgreinar. Ekki gleyma að gefa þér tíma til einveru þótt einhver innan fjölskyldunnar þurfi á þér að halda.
VOG 23. september - 22. október
Það er hverjum manni nauðsynlegt að vera einn með sjálfum sér öðru hverju. Fólk sem skilur þig er af snjallara meiði en aðrir og því áttu ekki að láta það sleppa.
SPORÐDREKI 23. október - 21. nóvember
Þú brýtur heilann um leiðir til tekjuöflunar þessa dagana. Hamingjusamt fólk veit að lykillinn að hamingjunni er að leita hennar ekki, heldur njóta dagsins.
BOGMAÐUR 22. nóvember - 21. desember
Gættu þess að láta fólk ekki hafa of mikil áhrif á þig því það hefur þú reynt áður. Vinir sakna þín, sinntu þeim.
STEINGEIT 22. desember - 19. janúar
Það hefur ekkert upp á sig að lenda í orðaskaki við fólk sem aldrei skilur sinn vitjunartíma. Mundu að engin manneskja er annars eign.
VATNSBERI 20. janúar - 18. Febrúar
Því verður ekki neitað að andleg lögmál eiga stærri þátt í fjármálum þínum en beinharðar tölur. Allt sem tengist peningum og vinnu er hagstætt í dag.
FISKAR 19. febrúar - 20. mars
Þú veist sitt af hverju en til allrar hamingju ekki allt, enda væri það mjög þreytandi fyrir félagana. Jafnvægi skapast þegar þú leyfir loftinu að endurnæra þig.