Hinn 48 ára gamli Michael Kennedy frá Alabama var í gær handtekinn fyrir að kveikja í kærustu sinni til þriggja ára, eftir að hún batt enda á samband þeirra með þeim afleiðingum að hún lést. Á hann að hafa gripið bensínbrúsa og hellt innihaldi hans yfir konuna og kveikt í.
Parið hafði verið að hittast í þrjú ár þegar sambandi þeirra lauk að frumkvæði konunnar. Líkaði honum það lítið og fór hann heim til sín og sótti bensínbrúsann og brunaði að heimili hennar þar sem mikið rifrildi hófst með ofannefndum afleiðingum. Konan hlaut við brunann mikil brunasár á höndum, efri líkama og fótum og í morgun, um tveimur sólarhringum eftir árásina, lést hún af sárum sínum.
Var maðurinn handtekinn, grunaður um gróft heimilisofbeldi og tilraun til manndráps.
Sjá frétt CBS-news