Pyntuðu son sinn áður en þau myrtu hann

Drengurinn var pyntaður til dauða af móður sinni og kærasta …
Drengurinn var pyntaður til dauða af móður sinni og kærasta hennar.

Réttarhöld standa nú yfir konu og kærasta hennar í Antelope Valley í Los Angeles í Bandaríkjunum þar sem þau eru grunuð um að hafa pyntað son konunnar á hryllilegan hátt áður en þau börðu hann til dauða. 

Í vitnaleislum komu margar hræðilegar staðreyndir málsins fram. Rannsókn málsins hófst þegar konan hringdi í neyðarlínuna og sagði að sonur hennar væri hættur að anda. Lögreglan kom á svæðið og beindist fljótlega grunur að henni og kærasta hennar. Í ljós kom að drengurinn, sem var átta ára gamall, var höfuðkúpubrotinn, með þrjú brotin rifbein og hafði fengið högg á lungun. 

Ákæruvaldið í málinu heldur því fram að drengurinn hafi verið pyntaður í átta mánuði, og að kærustuparið hafði komist upp með það með því að falsa læknisvottorð og ljúga að barnaverndaryfirvöldum. Eru þau meðal annars sökuð um að hafa þvingað drenginn til þess að borða eigin ælu, hann var laminn með leðurbelti og ef hann öskraði var honum komið fyrir í lítilli skúffu með sokk í munninum svo ekki heyrðist til hans. 

Rannsókn málsins vatt mikið upp á sig og áður en málið kom til kasta dómstóla höfðu tveir starfsmenn barnaverndaryfirvalda misst starf sitt sökum vanrækslu. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson