Longoriu langar í Brad

Eva Longoria í hlutverki Gabrielle Solis í Aðþrengdum eiginkonum.
Eva Longoria í hlutverki Gabrielle Solis í Aðþrengdum eiginkonum.

Eva Longoria, sem fer með hlutverk Gabriellu Solis í sjónvarpsþáttunum Aðþrengdar eiginkonur, sást vera að versla í Beverly Hills klædd bleikum t-bol sem á stóð: „Brad, mig langar að eignast barn með þér.“ Telja frægafólksfréttaskýrendur augljóst að þarna hafi verið skírskotað til Brad Pitt.

Ananova rifjar upp, að Pitt, sem nýlega skildi við Jennifer Aniston, hefur ítrekað lýst því yfir að hann langi til að verða pabbi. Hann hefur ennfremur harðneitað því að nokkuð sé hæft í sögusögnum þess efnis að hann sé í tygjum við Angelinu Jolie - sem, meðal annarra orða, mun nú hafa lýst því yfir að hún sé tilbúin til að ganga í það heilaga.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson